miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Prestur talar um óþverraspuna hjá DV

Jæja gott fólk það er af nógu að taka þegar maður rýnir í fréttir hjá DV. Við vorum ekki lengi að finna greinar sem skrifaðar hafa verið gegn DV sem svör, en þær hafa kannski ekki náð jafn mikilli útbreyðslu og soralygarnar hjá vesalingunum hjá DV. Hérna er ein grein sem er mótsvar við einni lyginni, flestir ættu nú að muna eftir málinu.

Óþveramaskínan DV

Þetta er eiginlega allt lygi, bull og vitleysa sem er í DV þessa dagana og snertir kjör og aðbúnað Sigurgeirs Kristinssonar í Þorlákshöfn. Þetta er óþveraspuni sem stenst enga skoðun. Blaðið hefur með þessum fréttaflutningi dæmt sig úr leik í mínum huga og fjöldamargra annarra.

Blaðið fullyrðir að þroskaheftum manni sé haldið eins og skepnu hér í Þorlákshöfn. Út frá þessu hefur blaðið spunnið upp alveg ótrúlega vonda og ósanna sögu. Auðtrúa blaðalesendur mættu halda að í Þorlákshöfn byggju fantar og illmenni, heimskur bæjarstjóri og utangátta prestur auk þeirra illmenna hjónanna Heimis Guðmundssonar og Laufeyjar Ásgeirsdóttur sem tóku Sigurgeir uppá arma sína fyrir 15 árum.

Sigurgeir vinur minn ekur um á nýlegum litlum jeppa. Hann er maður með mönnum hér í Þorlákshöfn, einn af þeim sem setja svip á bæinn. Ég kynntist honum nokkuð þegar skorið var niður fé hér í Ölfusi því að hann átti og sá um nokkuð margar kindur. Það var erfiður tími fyrir Geira eða Geira gamla eins og hann er gjarnan kallaður. Hann gat að sjálfsögðu ekki skilið slíkt fólskusverk yfirvalda. Meðan á þessu stóð kom hann til okkar hjónanna í heimsókn og ræddi málin. Ég þekki því vel til hans. Þetta er hlýr og yndislegur maður og á allt gott skilið.

DV er beint og óbeint að heimta að hann sé settur á stofnun og nýjasta uppfinning blaðsins er að best væri hann geymdur í Eyjum. Rangfært er eftir systur hans (ef rýnt er í texta fréttarinnar sést að konan er fyrst og fremst skelfd yfir umfjöllun blaðsins ekki aðstæðum Sigurgeirs enda þekkir hún vel til þeirra og er sátt við þær) að best væri að hann yrði settur á stofnun í Eyjum. Guð minn almáttugur. Hverjum dettur í hug að rífa mann með þessum hætti úr umhverfi sínu, frá vinum sínum, fjölskyldu, úr bænum sínum. Viðtalið við systur Sigurgeirs er eins og fleirra í þessari umfjöllun hrein og klár fréttafölsun.

En auðvitað er aldrei allt í himnalagi. Það er aldrei allt í lagi þegar menn búa í ósamþykktu húsnæði. Það afsakar hins vegar aldrei þessa fólskulegu umfjöllun. Íbúðin hans Geira er hins vegar ágætis einstaklingsíbúð, engin svínastía. Og Laufey Ásgeirsdóttir, það þekki ég, passar vel upp á að allt sé í lagi hjá honum, fái vel að borða,þrífi sig o.s.frv. Ég þekki ekki til fjármála hans en í fljótu bragði verður ekki annað séð en að Sigurgeir lifi miklu betra lífi en hann gæti gert inná stofnun. Og Heimir og Laufey fá ekki krónu frá félagsmálayfirvöldum fyrir það að annast Sigurgeir en venjulegar slíkar greiðslur eru á þriðja eða fjórða hundruð þúsund krónur á mánuði. Geiri vinnur einfaldlega fyrir sér, hann er launamaður. Og ég árétta. Sigurgeir er hluti af mannlífsflórunni hér í Þorlákshöfn, einn af þeim sem flestir þekkja, heilsa daglega og líkar vel við. Vel til hafður, hraustlegur maður á sjötugsaldri en þroskaheftur (þó hann hafi aldrei verið greindur sem slíkur og þess vegan erfitt að nota þetta orð). Það líður t.d. varla sá dagur að ég sjái hann ekki akandi um, farandi út í hesthús eða, áður en til niðurskurðar kom, að huga að kindum sínum. Það þarf ekkert að hjálpa honum í þeim aðstæðum sem hann býr við öðruvísi en að taka hann sem fullgildan mann og það gera sem betur fer flestir.

Ég veit að strákarnir sem vinna í trésmiðju Heimis hafa stundum verið að stríða honum og ég hef átalið þá fyrir það. Það er heldur ekki haldbær afsökun fyrir þessari fólskulegu umfjöllun. Af þeirra hálfu er það ekki illa meint –þeir fara stundum illa með hvorn annann og fullyrða að hann verði ekkert frekar fyrir barðinu á stríðninni en hver annar í hópnum. Ég trúi því alveg en sjálfsagt er að árétta það að gagnvart þroskaheftum ber að hafa sérstaka gát og taka hart á áreitni í þeirra garð. Ef þetta með skyrið er rétt ber að fordæma það.(Samstarfsmenn hans sem eru þvert ofnaí það sem skilja má á DV ágætis menn kannast ekki við þessa sögu segja þetta m.ö.o. lygi. Einhver segir mér að þetta hafi gerst einu sinni. DV er farið að tala um að þetta hafi margendurtekið sig. Sjálfur held éfg að þetta sé skröksaga) Ég hef hins vegar heimildir fyrir því að þetta með kanínurnar sé rangt. Óknyttaunglingar hafi drepið þær.(Blaðið ber það upp á Heimi Guðmundsson) Börn og unglingar í Þorlákshöfn hafa þó ekki gert sér far um að stríða Geira eða leggja hann í einelti. Af og frá.

Allt orkar tvímælis þá gert er. Mér er ekki kunnugt um með hvaða hætti þeir kynntust fyrir 15 árum Heimir og Sigurgeir. En hitt get ég fullyrt að þarna er ekki um að ræða neitt skepnuhald eins og DV gefur í skyn. Því síður að um sé að ræða nokkurt stofufangelsi. Hann er hluti af fjölskyldunni og vinnur í trésmiðju Heimis. Hann hefur m.a. ferðast með fjölskyldunni erlendis og til Vestmannaeyja. Sigurgeir fer (að sjálfsögðu) frjáls sinna ferða, ég hef t.d. oft rekist á hann útí Selvogi sem er byggð um 20 km frá Þorlákshöfn. Satt að segja er það síðasta sem mér hefur dottið í hug varðandi Geira að hann væri skepna í stofufangelsi eins og þetta undarlega blað er að tala um í þessari undarlegu umfjöllun sinni.

Allt er þetta mál ótrúlegur spuni. Ég skal segja ykkur mína sögu. Kurteis og elskulegur blaðamaður hringir og kynnir sig sem Símon Birgisson. Ég sagði honum strax að ég vildi ekkert segja um þetta mál. Ég væri í þeirri stöðu sem sóknarprestur. Síðan röbbuðum við saman. Ég sagði honum mína skoðun, hann sagði mér sína. Hann var alveg heiðarlegur með aðalatriðið: Segir að ég hafi ekki viljað svara neinum spurningum. Samt er mynd af mér með fréttinni og þessi spurning: Hvers vegna hjálpaði kirkjan ekki Sigurgeiri? Enn einn vitnisburðurinn sem sagt um illsku manna hér í Þorlákshöfn. Enn einn þráður í spunann.

Einhverjir komu þessu af stað. Einhverjir sem höfðu áhyggjur af Sigurgeir og fannst Heimir stjórnsamur um of gagnvart Geira, ekki borga honum nóg kaup eða eitthvað í þá áttina. Þeir hinir sömu eiga samúð mína. Sjálfsagt hefur þeim gengið gott eitt til. Aldrei er of varlega farið þegar um minnimáttar er að ræða. Þeir vissu hins vegar ekki hvers konar óþveramaskínu þeir voru að koma af stað.

DV leikur þann ljóta, óafsakanlega leik að teikna Sigurgeir upp sem þroskaheftan mann sem farið sé illa með. Meðal annars er byggt á viðtölum við Sigurgeir. Sigurgeir sjálfur veit ekki gjörla hvað er að gerast þegar slík viðtöl eru tekin. Í þessu athæfi blaðsins felst óttalegt siðleysi svo ekki sé meira sagt.

Þetta blað, þessi óþveramaskína, skilur alla eftir hálf særða. Sigurgeir sjálfan sem búið er að fullkominni ósekju að gera að viðundri og óskapanaði. Laufeyju og Heimi sem búið að útmála sem illmenni og fanta. Samfélagið allt í Þorlákshöfn sem virkar í spunanum utangátta, illt og heimskt. Hafi DV skömm allra góðra manna. Það tekur mál, sem vissulega var allt í lagi að taka upp og skoða, alltaf skyldi maður vera á varðbergi þegar þroskaheftir eru annars vegar, og býr til úr því harmleik fyrir alla hlutaðeigandi.

www.baldur.is

Free Web Counter Hit Counter