Hið dásamlega stjörnuslúður
Takk Íris.
Ég er ein af þeim sem les stjörnuslúður af miklum áhuga. Ég les þó nokkrar síður á netinu næstum daglega auk þess sem ég les íslensk dagblöð og tímarit ef ég kemst í þau. Mér finnst ekki koma til greina að gerast áskrifandi af neinu íslensku blaði eða tímariti vegna þess að mér finnst bókasafnið akkúrat rétti staðurinn fyrir blaðalestur og af hverju að borga þegar maður getur fengið frítt.
Það sem mér finnst skemmtilegast við stjörnuslúður er ekki það sem er raunverulega að gerast hjá viðkomandi stjörnu þá stundina. Mér er yfirleitt nokkuð sama hvort hafi sést til Whitney og Bobby að rífast enn eina ferðina eða hvort Julia Roberts sé ólétt. Mér finnst aftur á móti mjög gaman að sjá hvernig fjölmiðlar kjósa að fjalla um málið.
Þeir sem skoða fleiri en einn miðil á dag taka eftir því að innihaldið er yfirleitt tekið úr sama pottinum en síðan túlkað á þann hátt sem hver blaðamaður vill. Oft kemur þetta út eins og hvísluleikurinn þegar sagan breytist frá miðli til miðils þar til hún er orðin andstæða þess sem raunverulega gerðist. Þetta finnst mér meira áberandi í stjörnuslúðri en öðrum fréttaliðum og ég hef þar að auki tekið eftir því að íslenskir prentmiðlar birta oftar en ekki þessar stökkbreyttu útgáfur.
Um þetta eru til mjög mörg dæmi en til að nefna nýleg dæmi þá las ég til dæmis í DV að Beckham hjónin væru að skilja vegna þess að David væri búinn að viðurkenna framhjáhald. Á sama tíma og DV birti sína frétt birtu erlendir fjölmiðlar myndir þar sem hjónin mættu saman í veislu samrýmdari en nokkru sinni og aldrei var minnst orði á skilnað. Ég hef aðeins séð þessa skilnaðarfrétt í tveimur miðlum, DV og mbl.is. Mbl.is birti sína frétt á eftir DV og því bendir flest til þess að DV sé frumheimildin.
Ég held að mbl.is ætti að enduskoða þá ákvörðun sína að leita heimilda hjá blaðinu sem vann Séð og heyrt í keppninni um ómerkilegasta blaðsnepil sem gefin er út á Íslandi. DV birti nýlega, auk þessarar bull fréttar um Beckam hjónin, frétt um að Julia Roberts ætti í erfiðleikum með að eiga barn með kærastanum sínum. Það ætti kannski einhver að hringja og segja þeim að Julia Roberts hefur verið gift í næstum tvö ár og fá hjónabönd hafa vakið jafnmikla fjölmiðlaathygli. Það er spurning hvort að DV ætti að halda sig við að eyðileggja mannorð íslendinga enda hafa þeir gert mannorðsmorð nánast að keppnisgrein sem þeir ætla sér að sigra sama hvað það kostar. Til allrar hamingju hafa aðrir íslenskir miðlar ekki skráð sig leiks í þessari keppni niðurlægingar og samviskuleysis.
Þó að ég hafi notað DV sem dæmi um stökkbreytt stjörnuslúður þá er Séð og heyrt mjög sambærilegt og gengur meira að segja stundum það langt að greinar framarlega í blaðinu stangast á við þær sem eru aftar. Stjörnurnar eru jafnvel einhleypar á blaðsíðu 3 en á föstu á blaðsíðu 15.
Sennilega er flestum sama hvort eð er en mér finnst samt alveg hægt að ætlast til þess að blöð sem gefa sig út fyrir að vera með fréttir úr Hollywood taki sér tíma í að lesa fréttirnar sem verið er að vitna í.
Íris Alma Vilbergsdóttir
http://www.landpostur.is/roller/page/landpostur/Weblog/hi_eth_d_aacute_samlega

<< Home